Saturday, October 22, 2005

Við fjölskyldan á Læsö í lok Júlí 2005

Halló allir

hæ hæ.
Jæja nú á að gera aðra tilraun að halda úti heimasíðu fyrir vini og ættingja. Ég er að reyna að vinna úr kvörtunum vegna myndavöntun á okkar yndislegu börnum
En engar myndir eru enn komnar...en þetta kemur allt.
Við erum búin að vera að passa Malthe vin okkar síðan í gær. Foreldrarnir á eitthverju jamminu!!!
Og svo vorum við í 1 árs afmæli Sögu sætu í dag. Rosa stuð og mikill þrýstingur. Já og góðar kökur :)
Björn var að missa framtönn í efri gómi í gær og fékk heilar 20 krónur frá tannálfinum. Hann er að safna fyrir mótorhjóli og gengur ágætlega...nema mömmunni finnst það nú ekki gáfulega farið með sparipeninginn sem var hugsaður í eitthvað eigulegra. Ekki að mótorhjól sé ekki eigulegt....(segir mamman sem einusinni var mótorhjólagella) :S
jæja en læt þetta duga í bili