Thursday, September 21, 2006

Fréttir úr harlem!!

Hó hó!!!

Jæja þá er allt að gerast...eftir fleiri tugi áskoranna um að setja myndir inn og skrifa eitthvað ákvað ég að gera fólki til hæfis :) Maður ætti nú bara að skammast sín!!!! En gott að vita að það vill eitthver vita af manni hér úti í útlegðinni.
Annars er nú ekki mikið að frétta síðan síðast....
Ég er byrjuð í skólanum og það gengur bara fínt, nema hvað að ég er í mótþróa að vera send í skólann á hjólinu með heklu aftaná, 10 kílóa tösku á bakinu og fulla körfu að drasli framan á stýrinu...svo segja þeir að maður eigi að taka því rólega þegar að maður er óléttur!!!! Við Björn hjóluðum saman í dag og hann hafði orð á því hvað ég hjólaði hrikalega hægt. En spurnig hvort að manni takist þá að eiga á tíma svona eins og einusinni ef að maður verður svo útúrkeyrður að barnið hreinlega ákveður að drífa sig út úr þessu stresssamfélagi þarna inni :)

Það er mikið snakkað um Íslendinga í skólanum þessa dagana.
Um daginn var mikið gert grín af mér í skólanum og fékk ég nú að vita það að Íslendingarnir kynnu nú ekkert að spila fótbolta...he he "TÖPUÐU BARA" (ekki gott að vera ísl. þann daginn í skólanum) Þetta var nú líka hálfger hellisbúafótbolti fannst mér. Ef að danirnir byrjuðu að ógna íslendingunum rifu þeir bara í hár, kíldu og ýttu í stað þess að nota fæturnar og tækla þá....algerar kerlingar!!!!
Svo erum við búin að vera í medicinsk sociologi og þar talar læknirinn sem að er að kenna okkur mikið um Ísland..ég held svei mér þá að hann hafi bara álit á Íslendingum. Fyrir utan það að hann minntist á það um daginn að við værum að verða búin að kaupa upp Dannmörku. Talar allavega mikið um það hvað við séum með hærri lifialdur, reykjum, drekkum minna. Er að reyna að troða því inn í hausinn á okkur að það er samhengi á milli sukksins og lífsstílssjúkdómanna sem eru að verða eitthvað nýmóðins í okkar nútíma samfélagi.

Jæja en það eru smá fréttir....við erum að koma til Íslands!!!!! Júhúúúúú. Við komum í boði eitthverra í fjölskyldu okkar, sem ákváðu að slá saman í fargjald handa okkur. Hverjir það eru nákvæmlega veit ég ekki.....en þeir sem eiga heiðurinn....ÞÚSUND ÞAKKIR!!!!!!! Þið vitið sennilega ekki hvað þið eruð að gera okkur stórann greiða.
Málið er nefnilega að Jón Gunnar bróðir minn er að fara að gifta sig, og það á undan mér!!!!!!!!.(Hann er nú reyndar ekki búinn að bjóða okkur, en ég geri ráð fyrir að við meigum koma þó að við séum boðflennur!!!!) og pabbi Jóa er lasinn og við viljum fyrir alla muni geta komist aðeins nær fjölskyldunni okkar í nokkra daga. Svo að við segjum enn og aftur ÞÚSUND ÞAKKIR.
En þar sem að við stoppum stutt verður þessi ferð tileinkuð fjölskyldum okkar og ekki hægt að gera ráð fyrir að við verðum mikið annarsstaðar en í faðmi þeirra :) ÍÍÍÍÍ hvað ég hlakka til :)... en heimsóknir eru öðvitað velkomnar :)
jæja en læt þá vindhviðu duga í bili.
Kveðja Unnur Ósk

Wednesday, September 20, 2006

og meira.....

Sunnudaginn síðasta brá fjöskyldan sér í sveitaferð að sýna börnunum hvaðan mjólkin kom. Það var opið hús á nokkrum sveitabæjum hér í nágrenni.

Ég að reyna að sýna börnunum að það er óhætt að koma við kusurnar...ég var bara búin að gleyma hvað kussur eru með grófa tungu....En börnin okkar eru alger borgarbörn. Jói skammaðist sín niður fyrir allar tær og skósóla því að þau gerðu ekki annað en að hrópa OOOOJJJJJ ÓGEÐSLEG LYKT. KOMUM OKKUR ÚT HÉÐAN!!!!!!!! Ekki gott fyrir stoltan upalinn sveitamanninn!!!1
Svo varð að prufa taktorinn....Hekla fór náttúrulega í mest passandi fatnaðinum í sveitina og flórinn...á lakkskónum og í pínupilsinu. En það má nú ekki láta sjá sig öðruvísi á almannafæri því að það gæti eitthver séð til!!!!!



Og svo prufaði Björn líka dráttavélina ógurlegu. rosa stuð
Og Viktor Máni....allir þurftu að prufa fílinginn á Fordinum!!!!

Veiðiferð og fleira í byrjun sept


Risasnigill

Björn með risasnigilinn



Skondin stærðarhlutföll. Hekla María alveg stein hissa á þessu.... og Viktor Máni ómögulegur yfir öllu slíminu sem að snigillinn setti á peysuna hanns!!!!!1



Gúgúúúúú

Verið að byrja á hellulögninni...ógurlegu!!!

3-ja ára afmælisdagur Heklu Maríu 26 ágúst

Má bjóða þér kaffi eða te???

Verið að opna pakkaflóðið ógurlega...hmmm
Þetta er hún hekla "pía" eins og hún kallar sig sjálf

36 ára afmæli húsbóndanns 19 ágúst























Hmmm...eitthvað gruggugt við þessa köku!!!


















Björn og Björg vinkona hanns