Saturday, December 22, 2007

Jólin nálgast óðfluga...

Hó hó hó....

Hér á heimilinu er sungið, föndrað, lesið og trallað alla daga. Börnin eru að rifna úr spenningi. Jólamúsiíkin glymur hér úr hverju herbergi á kvöldin, og allir eru farnir að syngja með. Jólagjafirnar að verða komnar í hús, allar með tölu fyrir utan það sem er matarkyns.

Jói vinnur og vinnur og vinnur. Og við erum hamigjusöm hér í Danaveldi (allavega þessar vikurnar)

Jólatréð var skreitt hér síðustu helgi og í vikunni fékk það að kenna á því þegar að Vitktor Máni og Hekla María voru að rífast um jólastjörnuna, hvort átti að setja hana á toppinn og búms. Tréð rúllaði á hliðina með tilheyrandi braki og brotnum jólakúlum :) (eftir það fékk ég leyfi til að setja stjöruna sjálf á :)

jæja en hendi hér inn nokkrum myndum af börnunum

Gleðileg jól









2 comments:

Anonymous said...

Sæl elskurnar og Gleðileg Jól.
Gaman að fá frá ykkur smá fréttir og myndir.
Allir biðaj að heilsa .
Mamma og allir hinir

Anonymous said...

LOKSINS!! Segi ég nú bara....var að pæla í að gefast upp á að kíkja hérna inn en þá er sett önnur beita á öngulin! hmmm! Þið stækkið bara og dafnið, kæra fjölskylda, nema þú Unnur mín, alltaf jafn spik og span! Katla María bara komin með TENNUR! (er hún ekki bara nokkra vikna....hummm...;o))

Vonandi sjáumst við fljótlega!

Sakn sakn, klemm og knús!!

Skvísur í Skvísukoti.