Tuesday, January 09, 2007

myndir 2.





Gamlársdagur og strákarnir að æfa James Bond með "hunde propper" ;)














Svo var farið á brennu, sem samanstóð af einu stykki sóffa og 3 vörubrettum, ásamt smá afgangs jólapappír og þvílíku :)




























Og hér er svo fjölskyldan mínus hvalurinn(ég). Árni Arngríms, Arngrímur og Óttar þarna í bakgrunninn.






























Og svo var hámað í sig desert þegar heim var komið og farið í Billjard túrnernigu, og að sjálfsöguðu vann Björn! (ég verð að fara að æfa mig í laumi)



























































































Restin af Jólamyndunum. Hekla María er eins og sést mjög hrifin af sjálfri sér og vill að við tökum mynd af henni í gríð og erg. Hún fékk s.s þetta prinsessu dress í jólagjöf frá strákunum. Þetta var fyrsti pakkinn sem hún opnaði, og með það sama fauk fíni jólakjóllinn út í horn og þessi á og svonleiðis var hún restina af jólunum. Ef hún hefði fengið eins og 3-4 svona kjóladress í jólagjöf og ekkert annað, hefðu þetta verið hennar bestu jól. Hún hefði getað skipt um kjól á hálftíma fresti og fílað sig í ræmur!!!!













Hér eru Strákarnir að bíða eftir að allir séu búnir að setja sig á ráspól fyrir pakkana, og spennan og stemningin að gera útaf við þá. Björn var búinn að koma með allskonar plön um það hvernig við Jói ættum að vaska upp á jóladag, og ekkert að vera að eyða tíma í uppvaskið áður en átti að opna pakkana.



Viktor Máni er kominn með lausa tönn, og hann heldur að hann sé að fara að fermast á næsta ári , svei mér þá. Hann gerir ekki annað en að tala um það þegar að hann fer í skóla, þá ætli hann að læra að lesa. hann er reyndar farinn að sýna stöfunum mikinn áhuga og spáir mikið í það hver á hvaða staf. Hann er svo fyndinn þessa dagana, að við Jói eigum stundum í vandræðum með okkur. Það sem að vellur ekki upp úr honum. Nú er það nýjasta að hann á vin sem að býr í afríku og talar um það á hverjum degi.
Strákarnir fóru í sturtu með pabba sínum í fyrra dag og allt í einu segir Viktor Máni "höhö....pabbi, ég sé tippaskeggið þitt...höhö"
Hann er búinn að búa sér til óskalista fyrir afmælið sitt, sem er 9 mars. Hann spyr á hverjum degi hvað sé langt þangað til hann á afmæli. Hann fékk frá Jóni og Ester Playmó flugvél í jólagjöf, og hanns stæðsta ósk er að eignast allt það aukadót sem er hægt að kaupa við flugvélina. Þ.e flugstöðvarbygging, bílar, töskur, kallar, flugvélaverkstæðið.

Björn er orðinn voðalega duglegur að lesa heima. hann er að taka rosa framförum núna. Hann tók sig til í gær og skrifaði bréf til Björns afa síns sem liggur svo lasinn á sjúkrahúsi. Annars er bara það sama af Birni að frétta.

Hekla María er líka hin sama. Gengur upp í að vera fín, skipta um föt og spá í það hvað hún er mikil pía!!!! Strjúka bumbunni á mömmu sinni og spá í það hvernig hún ætlar að halda á barninu. Hún er sko meðvirk í óléttunni. Ég er ekki einusinni búin að eiga og hún er farin að gefa böngsunum sínum brjóst og pantar auka stól og disk við matarborðið fyrir dúkkurnar!!!! Hvar endar þetta??Ætli hún haldi ekki að þetta verði hennar barn þegar að það kemur, hún er búin að ákveða að barnið á að sofa inni hjá henni!!!

Jói, Björn og Hekla María veðja á að það komi stelpa, en Viktor Máni veðjar á strák einn daginn og stelpa hinn daginn. 'Eg held mér hlutlausri, enda hef ég enga tilfinningu fyrir hvort þetta er...fyrir utan að mig hlakkar þvílíkt til að losna við bumbuna. Mér líður eins og hval á þurru landi!!!
jæja,er farin að læra undir próf!!!!! Evidens og Epidemiologi og statistik...rosa spennandi :(
knús knús Unnsa

10 comments:

Anonymous said...

Jæja Unnsa það styttist óðum í þetta hjá þér! Ég skil þig svo rosalega vel með hvalinn á þurru landi enda er ég hætt alveg nóg 2 sinnum þannig að þú sérð hvað þú ert dugleg ha! Ekkert smá sæt börnin og hún Hekla mín minnir mig svolítið á frænku sína...svo ég segi nú ekki meir.

Frida said...

mikið eru þetta falleg börn sem þú átt!! og vá hvað ég kannast við þetta prinsessugen sem virðist hoppa yfir eina kynslóð!!!!!
hjálp í myndum, settu færri inn í einu...
knús, Fríða

Anonymous said...

hæ hæ bíð spennt eftir fréttum af fjölgun....

kv Gréta Rún á Íslandi

Anonymous said...

Ég líka!!

Hilsen,

Eydís.

Anonymous said...

Til hamingju með skvísuna;)

kveðja
Jón Gunnar og co

Anonymous said...

Elsku Jói og Unnur og börn !
Innilega til hamingju með skvísuna hafið það sem allra allra best. hlökkum til að sjá myndir af henni.
Kveðja
Hjalti bróðir og co.

Anonymous said...

Til Lukku elsku fjölskylda!

Knúsar

Skvís-ur

Anonymous said...

Innilega til hamingju með skvísuna, hlökkum mikið til að sjá myndir. Bestu kveðjur til allra.

Knús

Anonymous said...

Hæ hæ og innilega til hamingju með litlu skvísuna ykkur kæra fjölskylda. Gangi ykkur allt í haginn..

kv Gréta Rún og co

Unknown said...

Innilega til hamingju með prinsessuna, bíðum svo spennt eftir myndum :)

knús

Berglind og co